Hvernig metum við hið ómetanlega? — trú og lífsskoðun er yfirskrift ráðstefnu á vegum Guðbrandsstofnunar á Hólum í Hjaltadal sem hefst kl. 9.00 laugardaginn 20. maí og lýkur sunnudaginn 21. maí um hádegi. Ráðstefnan er hin þriðja í röðinni af fjórum sem haldnar hafa verið á Hólum í Hjaltadal með yfirskriftinni „Hvernig metum við hið ómetanlega?“
Ráðstefnan á siðbótarárinu ber undirtitilinn „trú og lífsskoðun“ og er í samstarfi við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, Samband íslenskra myndlistarmanna, Siðmennt, Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga og Sálfræðingafélagið. Stefnt er að fræðilegri umfjöllun um trú og lífsskoðun almennt og reynt að rýna í það frá ýmsum hliðum hvernig við upplifum trú okkar og lífsskoðun sálfræðilega, hvernig trú og lífsskoðun er tjáð í myndlist og myndmáli og hvernig hinir ýmsu trúarhópar og lífsskoðunarfélög upplifa lífsafstöðu sína. Lögð verður áhersla á að koma á samtali sem leitt getur til uppbyggingar. Gert er ráð fyrir jafnlöngum tíma í erindi eða kveikjur sem verða um 10 mínútur og 10 mínútna samtal á eftir. Því er gert ráð fyrir allt að 20 fyrirlesurum.
Loturnar verða þessar:
- Laugardagmorgunn: Lífstúlkun.
- Laugardagur eftir hádegi: Samfélag.
- Laugardagssíðdegi: Sjálfsskoðun.
- Sunnudagsmorgunn: Innblástur.
Ráðstefnunni lýkur með guðsþjónustu í Hóladómkirkju kl. 11.00.