Hin árlega Skálholtshátíð er haldin dagana 22.–23. júlí og verður hún tileinkuð siðbótarafmælisárinu. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, tekur á móti Margot Käßmann, biskupi og sendiherra þýsku kirkjunnar (EKD), sem verður sérstakur gestur Skálholtshátíðar.
Á laugardaginn á Skálholtshátíð verður útimessa og kynning á uppgraftarsvæði og verndaráætlun um fornminjar í landi Skálholts. Boðið verður upp á gönguferðir þar sem skoðaðir verða fuglar og grös. Glæsilegir Bach-tónleikar fara fram í Skálholtsdómkirkju.
Á sunnudag eru orgeltónleikar, hátíðarmessa og hátíðarsamkoma þar sem Margot Käßmann flytur hátíðarræðuna.
Fylgist með á heimasíðu Skálholts:
www.skalholt.is