Leikrit um manninn Lúther

Stoppleikhópurinn frumsýnir leikrit um Lúther í Grafarvogskirkju 14. október kl.14. Neskirkja býður upp á sýningu a leikritinu þann 15. októtber kl.14.

Handrit og leikgerð er í umsjá Valgeirs Skagfjörðs og Stoppleikhópsins. Leikritið er sett upp sem farandsýning og geta söfnuðir og skólar og fleiri áhugasamir pantað sýningu hjá eggert@centrum.is og arna.gretarsdottir@kirkjan.is. Leikritið er ætlað fullorðnum og eldri börnum.

Fyrir tveimur árum lagði Stoppleikhópurinn upp með sýningu um sr. Hallgrím Pétursson eftir sama höfund sem farið hefur víða og hlotið mikið lof, en leikhópurinn vonast til
að leikritið um Martein Lúther hljóti ekki síðri viðtökur.

Valgeir Skagfjörð leikstýrir verkinu og munu ásamt honum þau Eggert A. Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir fara með hlutverk í sýningunni.

Í verkinu skyggnist höfundur inn í æsku og uppvöxt Lúthers og reynir að varpa ljósi á það hvernig hann óx frá því að alast upp á fábrotnu alþýðuheimili upp í það að taka doktorspróf í guðfræði og setja fram gagnrýni á kaþólsku kirkjuna sem á þeim tíma þótti gjörsamlega óhugsandi. Þeir atburðir sem fylgdu í kjölfar þess að hann setti fram nýja sýn á kristna trú og inntak hennar urðu til þess að breyta viðhorfum alþýðufólks vítt og breytt um Evrópu og kristnum gildum til langframa.

One Comment

  1. Bragi J. Ingibergsson skrifar:

    Ég hef áhuga á því að fá leikritið um Lúther til sýningar í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði og tengja það árlegri dagkrá hjá okkur „Vetrardögum í Víðistaðakirkju“ sem stendur yfir dagana 29. okt. – 5. nóv. og verður að þessu sinni tileinkuð Lúther og 500 ára siðbótarafmæli. Spurningin er því hvort þið hafið lausan sýningartíma þessa viku. Hversu löng er sýningin? Er möguleiki að flétta henni in í guðsþjónustu eða er hún það löng að þurfa sérstakan tíma?

    Með bestu kveðjum,
    Bragi í Víðistaðakirkju

Comments are closed.