Siðbótardagurinn

Dómkirkjan í Reykjavík

Hinn 29. október er siðbótardagsins minnst með sérstakri hátíðarmessu í Dómkirkjunni kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson og Sr. Sveinn ­Valgeirsson þjóna fyrir altari ásamt fleirum. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prédikar. Kári Þormar er organisti og Dómkórinn syngur. Messunni verður útvarpað á Rás 1.

Hátíðarmessur og helgihald í kirkjum víða um land þar sem siðbótarinnar er minnst með margvíslegum hætti. Fylgist með á www.kirkjan.is og á heimasíðum sóknarkirknanna.