Upphaf siðaskipta og þróun vestræns prentverks liggur samsíða í tíma. Mótmælendur í Norður-Evrópu nýttu sér þessa nýju tækni til að breiða út hinn nýja sið hvort sem var til prentunar á guðsorði eða áróðusritum.
Á Hólum í Hjaltadal er vagga prentlistar á Íslandi og er talið að fyrsta prentsmiðjan hafi verið sett þar upp um 1530 af Jóni Arasyni Hólabiskupi. Seinna notaði Guðbrandur Þorláksson biskup sömu prentsmiðju til útbreiðslu siðbótar hérlendis með stórfelldri bókaútgáfu sinni á íslenskri tungu.
Tesur eru myndlistargjörningur sem myndlistarkonurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf Nordal munu standa fyrir, annars vegar á Hólahátíð 11.–13. ágúst, hins vegar í Hallgrímskirkju í Reykjavík 28.–31. október. Verkið á að minna á gjörninginn þegar Lúther negldi „tesurnar“ 95 á kirkjudyrnar í Wittenberg í Þýskalandi og markaði þannig upphaf siðbótar í Evrópu.
Gestum verður boðið að semja og teikna sínar eigin „tesur“ sem prentaðar verða með háprenti á pappír og síðan negldar á trévegg í kirkjunni.
Myndlistargjörningurinn Tesur var einnig settur upp á Hólum í Hjaltadal.