Tesur í Hallgrímskirkju

Upphaf siðaskipta og þróun ­vestræns ­prentverks liggur samsíða í tíma. ­Mótmælendur í Norður-Evrópu nýttu sér þessa nýju tækni til að breiða út hinn nýja sið hvort sem var til ­prentunar á guðsorði eða áróðusritum.

Á Hólum í Hjaltadal er vagga prentlistar á Íslandi og er talið að fyrsta prentsmiðjan hafi verið sett þar upp um 1530 af Jóni ­Arasyni Hólabiskupi. Seinna notaði Guðbrandur Þorláksson biskup sömu prentsmiðju til ­útbreiðslu siðbótar hérlendis með stórfelldri bókaútgáfu sinni á íslenskri tungu.

Tesur eru myndlistargjörningur sem myndlistar­konurnar Guðrún Kristjánsdóttir og Ólöf ­Nordal munu standa fyrir, annars vegar á Hólahátíð 11.–13. ágúst, hins vegar í Hallgríms­kirkju í Reykjavík 28.–31. október. Verkið á að minna á gjörninginn þegar Lúther negldi „tesurnar“ 95 á kirkjudyrnar í Wittenberg í Þýskalandi og ­markaði þannig upphaf siðbótar í Evrópu.

Gestum verður boðið að semja og teikna sínar eigin „tesur“ sem prentaðar verða með háprenti á pappír og síðan negldar á trévegg í kirkjunni.

Myndlistargjörningurinn Tesur var einnig settur upp á Hólum í Hjaltadal.