Boðið verður til „samtals um trú“ sex miðvikudagskvöld á föstunni í safnaðarheimili Dómkirkjunnar kl. 18.00–20.30. Léttur kvöldverður borinn fram.
- 1. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Lúther. Ævi og starf.
- 8. mars Sr. Sveinn Valgeirsson: Lúther og barnafræðslan.
- 15. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Gissur Einarsson og siðbótin á Íslandi.
- 22. mars Dr. Sigurjón Árni Eyjólfssson: Lúther og þjóðkirkjuhugtakið.
- 29. mars Sr. Sveinn Valgeirsson: Filippus Melankton.
- 5. apríl Sr. Kristján Valur Ingólfsson: Lúther og söngurinn.