26. október- fimmtudagur Vígsludagur Hallgrímskirkju 12.00 KYRRÐARSTUND- Hallgrímur & Lúther. Hildigunnur Einarsdóttir alt og Björn Steinar Sólbergsson orgel. Íhugun flytur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. 27. október- föstudagur Hallgrímsdagurinn -343. ártíð Hallgríms Péturssonar 20.00 SÁLMAR Á NÝRRI ÖLD! Kammerkórinn Schola cantorum Stjórnandi: Hörður Áskelsson „Sálmar á nýrri öld“ eru 26 sálmar eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Sigurð…
Author: Arna Grétarsdóttir
Útgáfuhátíð á vegum 2017.is
Þann 31. október verða 500 ár liðin frá því að Marteinn Lúther hratt af stað víðtækri þróun á sviði trúar, kirkju, samfélags og menningar í norðanverðri Evrópu með því að birta mótmælagreinarnar 95. Í tilefni af þessum tímamótum stendur rannsóknarverkefnið 2017.is fyrir útgáfu á greinasafni eftir íslenskt háskólafólk. Þess er að vænta að greinarnar varpi nýju ljósi…
Legið yfir Lúther í Neskirkju
Námskeið í tilefni 500 ára afmæli siðaskiptanna í Neskirkju. Þann 31. október næstkomandi eru 500 ár liðin frá atburði sem gerbreytti mannkynsögunni. Þá mótmælti munkurinn Marteinn Lúther aflátssölu kirkjunnar og sagan segir að hann hafi neglt blöð með 95 andmælum á kirkjudyrnar í Wittenberg. Upp frá því hófst atburðarrás sem leiddi til þess að kirkjan…
Hátíðartónleikar og Lútherskantata
Hátíðartónleikar og Lútherskantata frumflutt í tilefni af 500 ára siðbótarafmælinu 2017. Laugardagur 28. október kl.16 í Víðistaðakirkju. Sunnudaginn 29. október kl.16 í Hljómahöllinni, Keflavík. Fjölbreytt efnisskrá og frumflutningur á Lútherskantötu eftir Eirík Á. Sigtryggsson í samstarfi við kirkjukóra og organista Kjalarnessprófastsdæmis og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Á tónleikunum munu auk kóranna koma fram þau Ragnheiður Gröndal, Bylgja…
Málþing: Aðsteðjandi umhverfisógn og þörfin á siðbót
Málþing sem haldið verður föstudaginn 8. september nk. kl. 13:30-16:00 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins ber yfirskriftina: Aðsteðjandi umhverfisógn og þörfin á siðbót. Fyrirlesarar eru Ari Trausti Guðmundsson, Arnfríður Guðmundsdóttir, Halldór Björnsson og Sólveig Anna Bóasdóttir. Málþingið er á vegum Guðfræðistofnunar HÍ, Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar HÍ og nefndar á vegum þjóðkirkjunnar vegna 500 ára afmælis siðbótarinnar. Málþingið er öllum…
Tónleikhús um tvær siðbótarkonur á Hólahátíð
Á Hólahátíð verður Tónleikhús um tvær siðbótakonur flutt þann 13. ágúst kl.11. ReykjavíkBarokk flytur verkið, en í hljómsveitinni eru 12 hljóðfæraleikarar. Einsöngvararnir Hlín Pétursdóttir Behrens, Jóhanna Halldórsdóttir, Bragi Bergþórsson og Benedikt Ingólfsson syngja auk kirkjukóra Hóladómkirkju og Hofsós kirkju. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur og leikkona les leikhluta verksins. Diljá Sigursveinsdóttir fiðluleikari og Guðný Einarsdóttir organisti…