
Hinn 21. maí verður opnuð myndlistasýningin „Fimm hundruð naglar“ í forkirkju Hallgrímskirkju við messulok eða kl. 12.15. Grétar Reynisson, sem er bæði þekktur sem myndlistamaður og leikmyndahönnuður, sýnir ný verk tengd 500 ára afmæli siðbótar Lúthers. Um sýninguna segir listamaðurinn: „Þetta er framhald af fyrri verkum undanfarinna ára tengd söfnun, talningu og skráningu. Verkið sem er unnið fyrir Hallgrímskirkju er annars vegar mótað af tímatalinu eins og við mælum það í dögum, vikum, mánuðum og árum. Hins vegar er það mótað af tilvistarlegri upplifun tímans og sjónrænni framsetningu þessarar upplifunar.“
Sýningin stendur til 20. ágúst.
Sýningarstjóri er Rósa Gísladóttir.