Mysterium í Hallgrímskirkju

Hafliði Hallgrímsson

Dagana 21. og 22. október verður ­frumflutningur á nýrri óratóríu, ­Mysterium, eftir Hafliða Hallgrímsson, sem samin er að beiðni Listvinafélags Hallgrímskirkju. Verkið er samið fyrir kóra Hallgrímskirkju, einsöngvara og ­hljómsveit og fjallar um sköpun heimsins og valin atriði úr sögu Krists, fæðingu, líf, dauða og upprisu. Texti verksins er á latínu, en segja má að með því sé gengið í ­berhögg við eina af grundvallar­stefnu Lúthers að textar kirkjunnar skuli vera á móðurmáli. Með öflug­um formerkjum og í alþjóðlegu samhengi er þó hugsunin sú að með því sameigin­lega kirkjumáli sem latínan er verði líkurnar á útbreiðslu tónverksins og boðskapar þess mun meiri. Sérstakar þakkir fá Tónmenntasjóður kirkjunnar og Markus Möller, París, sem styðja samningu verksins.

Aðgangseyrir
5.900 kr. (50% afsláttur fyrir nemendur og öryrkja)

3.500 kr. fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju (40% afsláttur)