Útgáfuhátíð – Marteinn Lúther – Úrval rita I

Útgáfuhátíð verður haldin í Neskirkju hinn 1. desember n.k kl.16.30 – 18.00 þar sem fyrra bindi af völdum ritum Lúthers verður kynnt. Dr. Gunnar J. Gunnarsson formaður Nefndar um fimm alda minningu siðbótar flytur ávarp og dr. Gunnar Kristjánsson kynnir valin rit Lúthers. Gestum er boðið að kaupa bókina á forsöluverði og fylgir hverju eintaki plakat með 95 tesum Lúthers. Léttar veitingar.

Skálholtsútgáfan gefur ritin út í samstarfi við Nefnd um fimm alda minningu siðbótar.Dr. Gunnar Kristjánsson er aðalþýðandi verkanna og hefur búið  til prentunar valin rit eftir Martein ­Lúther sem gefin verða út í tveimur bindum. Síðara bindið kemur út á fyrri hluta næsta árs. Fæst ­þessara rita hafa áður komið út á íslensku og liggur því mikið þýðingarstarf að baki. Þau rit sem þegar hafa komið út hérlendis eru ­endurskoðuð frá grunni, meðal annars með hliðsjón af nýjum erlendum útgáfum á verkum ­Lúthers. Ritstjórn skipa dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, dr. ­Gunnar J. Gunnarsson og dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.

Meðal efnis sem ekki hefur áður birst á íslensku eru nokkrar prédikanir Lúthers, borðræður, skýringarrit, deilurit og bréf. Sem dæmi má finna bréf siðbótarmannsins til Leós 10. páfa sem bannfærði Lúther og til Karls 5. keisara sem gerði hann útlægan. Þarna eru grundvallarrit lútherskrar kristni um samband ríkis og kirkju, hvatning Lúthers til ­borgarráðsmanna um að stofna skóla og reka þá með sóma, bréf hans til bænda og fursta í aðdraganda bænda­uppreisnarinnar um að reynt verði til hins ýtrasta að ná sáttum. Ritin opna sögusvið siðbótartímans sem hafði áhrif á ­sögulega þróun Evrópu næstu aldir.