Hátíðartónleikar og Lútherskantata

Í tilefni 500 ára siðbótarafmælisins stendur Kjalarnessprófastsdæmi fyrir tveimur tónleikum með fjölbreyttri efnisskrá og frumflutningi á Lútherskantötu í samstarfi við kirkjukóra og organista prófastsdæmisins og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Tónleikarnir verða laugardaginn 28. október kl. 16:00 í Víðistaðakirkju og sunnudaginn 29. október kl. 16:00 í Hljómahöllinni, Keflavík.

Á tónleikunum munu auk kóranna syngja Ragnheiður Gröndal, Bylgja Dís Gunnarsóttir og Gissur Páll Gissurarson og stjórnandi verður Oliver J. Kentish. Um 200 manns munu koma að verkefninu, en fjölmennastur er kórinn auk hljómsveitar, stjórnenda og kórstjóra.

Efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt, en á þeim verður frumflutt Lútherskantata eftir Eirík Árna Sigtryggsson tónskáld. Höfundurinn fullyrðir að ekki hafi áður verið samin Lútherskantata og hún sé fyrsta sinnar tegundar og frumflutningur hennar því „heimssögulegur viðburður“. Verkið samanstendur af kórþáttum með samleik hljómsveitar og svo stuttum hljómsveitarþáttum á milli. Stíllinn er blanda af hefðbundnum kórsöng í sálmastíl, nútímalegum ómstreitum, dægurlagakenndum hljómum og rómantískum laglínum. Tónverkið er byggt á „95 tesum“ Lúthers, sem voru birtar 31. október árið 1517 og marka upphaf siðbótarinnar.

Æfingar kirkjukóra fyrir tónleikana hefjast á vormánuðum og er öllum kórum og söngfólki í Kjalarnessprófastsdæmi velkomið að taka þátt.