Ný sálmabók

Sálmabókarnefnd, sem skipuð er af biskupi Íslands, hefur undanfarin ár unnið að gerð nýrrar sálmabókar. Nýja sálmabókin verður gefin út á siðbótardaginn.

Sálmasöngurinn er svar safnaðarins við orði Guðs og í nýrri sálmabók er að finna sálma í fjölbreyttum stíltegundum, frá fjölmörgum löndum og frumsamda íslenska sálma. Lúther lagði áherslu á söng safnaðarins og í þeim anda eru söfnuðir hvattir til að taka nýja sálmabók í notkun.

Lifandi kirkja er syngjandi kirkja.

31. október — Siðbótardagurinn

Sálmasöngur í Hallgrímskirkju kl. 20.

Dagsins verður minnst með margvíslegum hætti í kirkjum landsins. Fylgist með á www.kirkjan.is og www.sidbot.is.

31. október kl. 16.00–18.00

Dagskrá í tilefni útgáfu greinasafns á vegum 2017.is. Verkefni 2017.is er þverfaglegt rannsóknarverkefni um áhrif siðaskiptanna á kirkju, samfélag og menningu í 500 ár. Guðfræðistofnun HÍ hafði frumkvæði að stofnun 2017.is og er samstarfsaðili verkefnisins. Fylgist með á www.2017.is.