Samtal um trú

Boðið verður til „samtals um trú“ sex miðvikudagskvöld á föstunni í safnaðar­heimili Dómkirkjunnar kl. 18.00–20.30. Léttur kvöldverður borinn fram. 1. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Lúther. Ævi og starf. 8. mars Sr. Sveinn Valgeirsson: Lúther og barnafræðslan. 15. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Gissur Einarsson og siðbótin á Íslandi. 22. mars Dr. Sigurjón Árni Eyjólfssson: Lúther og þjóðkirkjuhugtakið. 29….

Að gefa og þiggja

Málþing undir yfirskriftinni „Að gefa og þiggja“ verður haldið í Suðurhlíðarskóla 31. mars kl. 14–17. Nefnd um fimm alda minningu ­siðbótar í ­samstarfi við ­Samstarfsnefnd ­kristinna ­trúfélaga efnir til málþingsins á ­samkirkjulegum nótum. Dr. ­María ­Ágústsdóttir og dr. Eric Guðmundsson hafa veg og vanda af skipulagningu. Fyrirlestrar Sr. Jakob Rolland: Um samkomulag Rómversk-kaþólsku kirkjunnar og…

Af jörðu ertu kominn

Hinn 2. apríl verður sýning Grétars Reynissonar opnuð í Neskirkju kl. 11. Sýningin heitir „Af jörðu ertu kominn“. Fimm hundruð fingraför verða sett á vegg upp úr mold þeirri er sett var á kistu móður hans og myndir af hendi hans tvítugum og svo núna. Grétar Reynisson vinnur með hverfulleika mannsins og eilífðarhugtakið í þessu…

Hér stend ég. Hvar stendur þú?

Fermingarfræðsluefni í glærukynningu ­byggt á dönsku efni. Hér eru lagðar fram spurningar í anda Lúthers. Hver er Guð í augum okkar? Hver ákveður hvað er satt? Með hvaða hætti getum við komist að því hvernig best sé að lifa lífinu? Er í lagi að gera uppreisn? „Hér stend ég,“ sagði Lúther. Hvar stendur þú?

Hinar 95 „tesur“ Lúthers

Skálholtsútgáfan gefur út veggspjald með 95 „tesum“ Lúthers í nýrri þýðingu sr. Sveins Valgeirssonar.

Hvernig metum við hið ómetanlega?

Hvernig metum við hið ómetanlega? — trú og lífsskoðun er yfirskrift ráðstefnu á vegum Guðbrandsstofnunar á Hólum í Hjaltadal sem hefst kl. 9.00 laugardaginn 20. maí og lýkur sunnudaginn 21. maí um hádegi. Ráðstefnan er hin þriðja í röðinni af fjórum sem haldnar hafa verið á Hólum í Hjaltadal með yfirskriftinni „Hvernig metum við hið…

Ad fondes: Hin sífellda siðbót fylgjenda Lúthers

Prestafélag Hólastiftis hins forna boðar til seminars á Hólum í Hjaltadal í tilefni 500 ára árstíðar siðbótarinnar. Seminarið fer fram dagana 28.–30. maí 2017 og ber yfirskriftina Ad fondes: Hin sífellda siðbót fylgjenda Lúthers (e. Lutherans always reforming). Fyrirlesarar verða Gordon Lathrop og Gail Ramshaw. Skráning fer fram hjá sr. Gunnlaugi Garðarsyni formanni og sr. Sigríði Gunnarsdóttur…

Fimm hundruð naglar

Hinn 21. maí verður opnuð myndlista­sýningin „Fimm hundruð naglar“ í forkirkju Hallgríms­kirkju við messulok eða kl. 12.15. Grétar Reynisson, sem er bæði þekktur sem myndlistamaður og ­leikmyndahönnuður, sýnir ný verk tengd 500 ára afmæli ­siðbótar Lúthers. Um sýninguna segir ­listamaðurinn: „Þetta er framhald af fyrri verkum undanfarinna ára tengd söfnun, talningu og skráningu. Verkið sem…

Prestastefna í Wittenberg

Að lútherskum sið boða biskupar í ­tilteknu biskupsdæmi til prestastefnu. ­Prestastefna hefur það hlutverk að fjalla um mál er varða presta, helgisiði og ­kenningu kirkjunnar. Á afmælisárinu hefur biskup Íslands boðað til prestastefnu við rætur siðbótarinnar í Wittenberg.

Skálholtshátíð

Hin árlega Skálholtshátíð er haldin dagana 22.–23. júlí og verður hún tileinkuð siðbótarafmælisárinu. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, tekur á móti Margot Käßmann, biskupi og sendiherra þýsku kirkjunnar (EKD), sem verður sérstakur gestur Skálholtshátíðar. Á laugardaginn á Skálholtshátíð verður útimessa og kynning á uppgraftarsvæði og verndaráætlun um fornminjar í landi Skálholts. Boðið verður…