Hvað er það sem gerir Martein Lúther svo einstakan að 500 árum síðar er enn verið að tala um hann? Bókin Marteinn Lúter — munkur breytir heiminum dregur upp mynd af lífi og starfi Lúthers og svarar um leið spurningunni. Teikningarnar gerði Johannes Saurer en söguna skrifar Ulrike Albers. Hentar ekki aðeins aðdáendum myndasögubóka, heldur einnig…
Mysterium í Hallgrímskirkju
Dagana 21. og 22. október verður frumflutningur á nýrri óratóríu, Mysterium, eftir Hafliða Hallgrímsson, sem samin er að beiðni Listvinafélags Hallgrímskirkju. Verkið er samið fyrir kóra Hallgrímskirkju, einsöngvara og hljómsveit og fjallar um sköpun heimsins og valin atriði úr sögu Krists, fæðingu, líf, dauða og upprisu. Texti verksins er á latínu, en segja má að…
Landsmót ÆSKÞ
Landsmót 2017 verður haldið á Selfossi helgina 27.–29. október og er þema mótsins „umhverfisvitund“. Árlega sækja allt að 700 unglingar Landsmót Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) víðsvegar af landinu. Helgin er uppfull af skemmtun og fræðslu. Nánari upplýsingar á www.aeskth.is.
Siðbótardagurinn
Hinn 29. október er siðbótardagsins minnst með sérstakri hátíðarmessu í Dómkirkjunni kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson og Sr. Sveinn Valgeirsson þjóna fyrir altari ásamt fleirum. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prédikar. Kári Þormar er organisti og Dómkórinn syngur. Messunni verður útvarpað á Rás 1. Hátíðarmessur og helgihald í kirkjum víða um land þar sem siðbótarinnar er minnst…
Tesur í Hallgrímskirkju
Upphaf siðaskipta og þróun vestræns prentverks liggur samsíða í tíma. Mótmælendur í Norður-Evrópu nýttu sér þessa nýju tækni til að breiða út hinn nýja sið hvort sem var til prentunar á guðsorði eða áróðusritum. Á Hólum í Hjaltadal er vagga prentlistar á Íslandi og er talið að fyrsta prentsmiðjan hafi verið sett þar upp um…
Legið yfir Lúther í Neskirkju
17.–31. október. Þrjú kvöld helguð guðfræði Lúthers og áhrifum hennar á Íslandi og í hinu alþjóðlega samhengi. Fjallað verður um atburði siðaskiptanna, sálmar Lúthers verða krufnir og sungnir og starfsemi Lútherska heimssambandsins kynnt.
Hátíðartónleikar og Lútherskantata
Í tilefni 500 ára siðbótarafmælisins stendur Kjalarnessprófastsdæmi fyrir tveimur tónleikum með fjölbreyttri efnisskrá og frumflutningi á Lútherskantötu í samstarfi við kirkjukóra og organista prófastsdæmisins og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. Tónleikarnir verða laugardaginn 28. október kl. 16:00 í Víðistaðakirkju og sunnudaginn 29. október kl. 16:00 í Hljómahöllinni, Keflavík. Á tónleikunum munu auk kóranna syngja Ragnheiður Gröndal, Bylgja Dís Gunnarsóttir…
Ný sálmabók
Sálmabókarnefnd, sem skipuð er af biskupi Íslands, hefur undanfarin ár unnið að gerð nýrrar sálmabókar. Nýja sálmabókin verður gefin út á siðbótardaginn. Sálmasöngurinn er svar safnaðarins við orði Guðs og í nýrri sálmabók er að finna sálma í fjölbreyttum stíltegundum, frá fjölmörgum löndum og frumsamda íslenska sálma. Lúther lagði áherslu á söng safnaðarins og í…