Uppskriftir og uppþot: Málþing um kristni og kynlægar hugmyndir

2017.IS — þverfræðilegt rannsóknarverkefni um áhrif siðaskiptanna á trú, menningu og samfélag, stendur fyrir málþingi um kristni og kynlægar hugmyndir undir yfirskriftinni  Uppskriftir og uppþot föstudaginn 24. mars kl. 13:30–16:00. Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Fyrirlesarar:

  • Hjalti Hugason: Siðbótin — uppskriftir og uppþot.
  • Þórunn Sigurðardóttir: „Holds sælgætið blíða“. Siðgæði í 17. aldar tækifæris- og siðatextum.
  • Erla Hulda Halldórsdóttir: „Andvarp syrgjandi ekkju“. Dauðinn, sorgin og trúin í bréfum Sigríðar Pálsdóttur.
  • Arnfríður Guðmundsdóttir: Pólitískt uppþot í nafni kristinnar trúar. Séra Ólafur Ólafsson fríkirkjuprestur og réttindabarátta kvenna um 1900.
  • Kristín Ástgeirsdóttir: „Í vorsins nafni stefnu og störf skal hefja: að styrkja, vernda, – þerra tár af kinn“. Kristileg orðræða í baráttuljóðum íslensku kvenréttindahreyfingarinnar.
  • Sólveig Anna Bóasdóttir: Kynlíf, kristni og mannréttindi. Afstaða Amnesty International til vændis.

Stjórnandi: Auður Styrkársdóttir.

Málþingið er öllum opið.