Ad fondes: Hin sífellda siðbót fylgjenda Lúthers

Prestafélag Hólastiftis hins forna boðar til seminars á Hólum í Hjaltadal í tilefni 500 ára árstíðar siðbótarinnar. Seminarið fer fram dagana 28.–30. maí 2017 og ber yfirskriftina Ad fondes: Hin sífellda siðbót fylgjenda Lúthers (e. Lutherans always reforming). Fyrirlesarar verða Gordon Lathrop og Gail Ramshaw. Skráning fer fram hjá sr. Gunnlaugi Garðarsyni formanni og sr. Sigríði Gunnarsdóttur…

Fimm hundruð naglar

Hinn 21. maí verður opnuð myndlista­sýningin „Fimm hundruð naglar“ í forkirkju Hallgríms­kirkju við messulok eða kl. 12.15. Grétar Reynisson, sem er bæði þekktur sem myndlistamaður og ­leikmyndahönnuður, sýnir ný verk tengd 500 ára afmæli ­siðbótar Lúthers. Um sýninguna segir ­listamaðurinn: „Þetta er framhald af fyrri verkum undanfarinna ára tengd söfnun, talningu og skráningu. Verkið sem…

Prestastefna í Wittenberg

Að lútherskum sið boða biskupar í ­tilteknu biskupsdæmi til prestastefnu. ­Prestastefna hefur það hlutverk að fjalla um mál er varða presta, helgisiði og ­kenningu kirkjunnar. Á afmælisárinu hefur biskup Íslands boðað til prestastefnu við rætur siðbótarinnar í Wittenberg.

Skálholtshátíð

Hin árlega Skálholtshátíð er haldin dagana 22.–23. júlí og verður hún tileinkuð siðbótarafmælisárinu. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti, tekur á móti Margot Käßmann, biskupi og sendiherra þýsku kirkjunnar (EKD), sem verður sérstakur gestur Skálholtshátíðar. Á laugardaginn á Skálholtshátíð verður útimessa og kynning á uppgraftarsvæði og verndaráætlun um fornminjar í landi Skálholts. Boðið verður…

Myndasögubók um Lúther

Hvað er það sem gerir Martein Lúther svo einstakan að 500 árum síðar er enn verið að tala um hann? Bókin Marteinn Lúter — munkur breytir heiminum dregur upp mynd af lífi og starfi Lúthers og svarar um leið spurningunni. Teikningarnar gerði Johannes Saurer en söguna skrifar Ulrike Albers. Hentar ekki aðeins aðdáendum myndasögubóka, heldur einnig…

Mysterium í Hallgrímskirkju

Dagana 21. og 22. október verður ­frumflutningur á nýrri óratóríu, ­Mysterium, eftir Hafliða Hallgrímsson, sem samin er að beiðni Listvinafélags Hallgrímskirkju. Verkið er samið fyrir kóra Hallgrímskirkju, einsöngvara og ­hljómsveit og fjallar um sköpun heimsins og valin atriði úr sögu Krists, fæðingu, líf, dauða og upprisu. Texti verksins er á latínu, en segja má að…

Landsmót ÆSKÞ

Landsmót 2017 verður haldið á Selfossi helgina 27.–29. október og er þema mótsins „umhverfisvitund“. Árlega sækja allt að 700 unglingar Landsmót Æskulýðssambands þjóðkirkj­unnar (ÆSKÞ) víðsvegar af landinu. Helgin er uppfull af skemmtun og fræðslu. Nánari upplýsingar á www.aeskth.is.

Siðbótardagurinn

Hinn 29. október er siðbótardagsins minnst með sérstakri hátíðarmessu í Dómkirkjunni kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson og Sr. Sveinn ­Valgeirsson þjóna fyrir altari ásamt fleirum. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir prédikar. Kári Þormar er organisti og Dómkórinn syngur. Messunni verður útvarpað á Rás 1. Hátíðarmessur og helgihald í kirkjum víða um land þar sem siðbótarinnar er minnst…

Tesur í Hallgrímskirkju

Upphaf siðaskipta og þróun ­vestræns ­prentverks liggur samsíða í tíma. ­Mótmælendur í Norður-Evrópu nýttu sér þessa nýju tækni til að breiða út hinn nýja sið hvort sem var til ­prentunar á guðsorði eða áróðusritum. Á Hólum í Hjaltadal er vagga prentlistar á Íslandi og er talið að fyrsta prentsmiðjan hafi verið sett þar upp um…

Legið yfir Lúther í Neskirkju

17.–31. október. Þrjú kvöld helguð guðfræði Lúthers og áhrifum hennar á Íslandi og í hinu alþjóðlega samhengi. Fjallað verður um atburði siðaskiptanna, sálmar Lúthers verða krufnir og sungnir og starfsemi Lútherska heimssambandsins kynnt.