Lúther og lífsgleðin

Hinn 18. febrúar mun dr. Sigurjón Árni ­Eyjólfsson flytja fyrirlestur um sýn ­Lúthers á lífið og dauðann á dánardegi Lúthers. ­Málþingið verður haldið í safnaðarheimili Dómkirkjunnar í Reykjavík kl. 18. Eftir málþingið er gestum, er það vilja, boðið að ganga yfir á „Skúla“ og kynnast bjórnum „Lúther“.

Uppskriftir og uppþot: Málþing um kristni og kynlægar hugmyndir

2017.IS — þverfræðilegt rannsóknarverkefni um áhrif siðaskiptanna á trú, menningu og samfélag, stendur fyrir málþingi um kristni og kynlægar hugmyndir undir yfirskriftinni  Uppskriftir og uppþot föstudaginn 24. mars kl. 13:30–16:00. Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Fyrirlesarar: Hjalti Hugason: Siðbótin — uppskriftir og uppþot. Þórunn Sigurðardóttir: „Holds sælgætið blíða“. Siðgæði í 17. aldar tækifæris- og siðatextum. Erla…

Konur sem viðfangsefni í guðfræði Lúthers og þátttakendur í siðbót hans

Málstofa á vegum 2017.is verður haldin í stofu 220 í aðalbyggingu Háskóla Íslands fimmtudaginn 2. mars 2017 kl. 15:30.  Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir kynnir rannsóknir sínar á afstöðu Marteins Lúthers til kvenna og þátttöku þeirra í siðbótarhreyfingunni í Þýskalandi og Sviss á 16. öldinni. Málstofan er öllum opin. Sjá myndband frá málstofunni hér.

Æskulýðsdagur

Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er haldinn á hverju ári fyrsta sunnudag í mars sem í ár er 5. mars. Fræðsluefni um Lúther og ­siðbótina fyrir æskulýðsfélög verður gefið út af ­Fræðslusviði Biskupsstofu. Höfundar eru sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og Margrét Rós Harðardóttir.

Samtal um trú

Boðið verður til „samtals um trú“ sex miðvikudagskvöld á föstunni í safnaðar­heimili Dómkirkjunnar kl. 18.00–20.30. Léttur kvöldverður borinn fram. 1. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Lúther. Ævi og starf. 8. mars Sr. Sveinn Valgeirsson: Lúther og barnafræðslan. 15. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Gissur Einarsson og siðbótin á Íslandi. 22. mars Dr. Sigurjón Árni Eyjólfssson: Lúther og þjóðkirkjuhugtakið. 29….

Að gefa og þiggja

Málþing undir yfirskriftinni „Að gefa og þiggja“ verður haldið í Suðurhlíðarskóla 31. mars kl. 14–17. Nefnd um fimm alda minningu ­siðbótar í ­samstarfi við ­Samstarfsnefnd ­kristinna ­trúfélaga efnir til málþingsins á ­samkirkjulegum nótum. Dr. ­María ­Ágústsdóttir og dr. Eric Guðmundsson hafa veg og vanda af skipulagningu. Fyrirlestrar Sr. Jakob Rolland: Um samkomulag Rómversk-kaþólsku kirkjunnar og…

Af jörðu ertu kominn

Hinn 2. apríl verður sýning Grétars Reynissonar opnuð í Neskirkju kl. 11. Sýningin heitir „Af jörðu ertu kominn“. Fimm hundruð fingraför verða sett á vegg upp úr mold þeirri er sett var á kistu móður hans og myndir af hendi hans tvítugum og svo núna. Grétar Reynisson vinnur með hverfulleika mannsins og eilífðarhugtakið í þessu…

Hér stend ég. Hvar stendur þú?

Fermingarfræðsluefni í glærukynningu ­byggt á dönsku efni. Hér eru lagðar fram spurningar í anda Lúthers. Hver er Guð í augum okkar? Hver ákveður hvað er satt? Með hvaða hætti getum við komist að því hvernig best sé að lifa lífinu? Er í lagi að gera uppreisn? „Hér stend ég,“ sagði Lúther. Hvar stendur þú?

Hinar 95 „tesur“ Lúthers

Skálholtsútgáfan gefur út veggspjald með 95 „tesum“ Lúthers í nýrri þýðingu sr. Sveins Valgeirssonar.

Hvernig metum við hið ómetanlega?

Hvernig metum við hið ómetanlega? — trú og lífsskoðun er yfirskrift ráðstefnu á vegum Guðbrandsstofnunar á Hólum í Hjaltadal sem hefst kl. 9.00 laugardaginn 20. maí og lýkur sunnudaginn 21. maí um hádegi. Ráðstefnan er hin þriðja í röðinni af fjórum sem haldnar hafa verið á Hólum í Hjaltadal með yfirskriftinni „Hvernig metum við hið…